Útboð

Loading...

Orkuveitan gætir jafnræðis, gagnsæis og hagkvæmni við öll innkaup.

Það er stefna Orkuveitunnar að beita opnum útboðum við kaup á vörum, þjónustu og verkframkvæmdum. Að öðrum kosti skal beita öðrum innkaupaaðferðum í samræmi við gildandi lög og reglur.

Við innkaup og rekstur samninga tökum við tillit til sjálfbærnisjónarmiða, s.s. gæða-, heilbrigðis-, mannréttinda-, umhverfis-, upplýsingaöryggis- og öryggissjónarmiða og miðum mat okkar á hagstæða tilboði meðal annars út frá þessum þáttum.

Öll innkaupaferli Orkuveitunnar og dótturfélaga eru rafræn í gegnum útboðsvef Orkuveitunnar. Á útboðsvefnum er að finna lista yfir öll virk útboð hjá Orkuveitunni og dótturfélögum.

Innleiðing á rafrænu útboðskerfi er liður í því að uppfylla lög og reglugerðir um rafræn samskipti og upplýsingagjöf í innkaupaferlum vegna opinbera innkaupa.

Þau sem hafa áhuga á að taka þátt í innkaupaferlum eru hvött til að skrá sig á útboðsvefinn.

Við mælum með að bjóðendur kynni sér vefinn og undirbúi afhendingu fyrirspurna og skil á tilboðum með góðum fyrirvara. Starfsfólk Innkaupa Orkuveitunnar leitast við að aðstoða bjóðendur við notkun á útboðsvefnum enda berist ósk þar um með hæfilegum fyrirvara, eigi síðar en einum virkum degi fyrir viðkomandi tímafrest.