Innkaupastefna

Það er stefna Orkuveitunnar að:

  • Beita útboðum, s.s. almennum eða lokuðum eða öðrum lögbundnum innkaupaferlum við kaup á vörum, þjónustu og verkframkvæmdum. Við innkaup verði tekið tillit til sjálfbærnisjónarmiða og að hagstæðasta tilboði sé tekið.
  • Innkaupareglur og innkaupaaðferðir séu skýrar og gagnsæjar.
  • Gæta jafnræðis, gagnsæis og hagkvæmni við öll innkaup.
  • Við innkaup og rekstur samninga skuli taka tillit til sjálfbærnisjónarmiða, s.s. gæða-, heilbrigðis-, mannréttinda-, umhverfis-, upplýsingaöryggis- og öryggissjónarmiða.

Innkaupastefnan byggir á gildum og heildarstefnu Orkuveitunnar og er sett fram til samræmis við eigendastefnu fyrirtækisins.