Gæðastefna

Gæðastefna Orkuveitunnar er að mæta þörfum viðskiptavina með því að miðla vörum og góðri þjónustu með hagkvæmum og öruggum hætti.

Stöðugar umbætur, flæði ferla og lífsferilshugsun liggja til grundvallar í allri starfseminni.

Lífsferilshugsun felur í sér heildarferilinn allt frá upplifun viðskiptavinar, upplýsingagjöf og að vinna með hliðsjón af öryggi, hagkvæmni, vistspori og förgun á líftíma.

Orkuveitan leggur sérstaka áherslu á:

  • virðisaukandi þjónustu
  • faglega verkefnastjórnun
  • hagkvæma viðhalds- og eignastjórnun
  • skjala- og upplýsingastjórnun
  • notkun á tækni til að auka virði og hagkvæmni

Gæðastefnan byggir á gildum og heildarstefnu Orkuveitunnar og sett fram til samræmis við eigendastefnu.

Mæling:

  • Ánægja viðskiptavina (stefnumælikvarði)
  • Aðrir mælikvarðar heildarstefnu Orkuveitunnar
  • Framkvæmd innri og ytri úttekta til staðfestingar á virkni gæðastjórnunarkerfis

Tilvísanir:

SKI-100; Ábyrgðir i vottuðum stjórnunarkerfum.

SKI-205; Gæðastjórnunarkerfi (ISO 9001).