Staðlar og vottanir

Orkuveitan og dótturfélög hafa innleitt stjórnunarkerfi í samræmi við alþjóðlega staðla og kröfur löggjafans. Reglulega er virkni kerfanna sannprófuð með úttektum af óháðum faggiltum aðilum.

ISO 9001 - Alþjóðlegur gæðastjórnunarstaðall

Orkuveitan hefur innleitt gæðastjórnunarkerfi sem tekur á öllum þáttum starfsemi samstæðunnar. Gæðastjórnunarkerfið er vottað af faggiltum úttektaraðilum og er virkni þess staðfest árlega.

ISO 14001 - Alþjóðlegur umhverfisstjórnunarstaðall

Orkuveitan hefur innleitt umhverfisstjórnunarkerfi sem tekur á öllum þáttum umhverfismála hjá samstæðunni. Kerfið er vottað af faggiltum úttektaraðilum og er virkni þess staðfest árlega.

ISO 27001 - Alþjóðlegur staðall um stjórnun upplýsingaöryggis

Orkuveitan hefur innleitt stjórnunarkerfi vegna upplýsingaöryggis sem tekur á öllum þáttum starfsemi samstæðunnar. Upplýsingaöryggisstjórnunarkerfið er vottað af faggiltum úttektaraðilum og er virkni þess staðfest árlega.

ISO 45001- Alþjóðlegur staðall um stjórnun heilbrigðis og öryggis á vinnustað

Með stjórnunarkerfinu er tekið á málefnum er varða vinnuöryggi og heilsuvernd. Kerfið er vottað af faggiltum úttektaraðilum og er virkni þess staðfest árlega.

ISO 860x180

Vottanir 240x2403

ISO 14064-1 - Alþjóðlegur staðall Greenhouse Gas Protocol

Loftslagsbókhald Orkuveitunnar er unnið samkvæmt aðferðafræði Greenhouse Gas Protocol og nýtur óháðrar vottunar á að það uppfylli kröfur alþjóðlega staðalsins ISO 14064-1. Í loftslagsbókhaldinu sést losun einstakra þátta rekstursins, markmið okkar og mótvægisaðgerðir í loftslagsmálum.

Vottanir 240x2402

ÍST 85 - Íslenskur staðall um jafnlaunakerfi

Hjá Orkuveitunni hefur verið innleitt lögbundið jafnlaunakerfi sem vottað er af faggiltum úttektaraðilum og er virkni þess staðfest árlega. Orkuveitan hefur jafnframt heimild Jafnlaunastofu til að nota Jafnlaunamerkið 2025-2028. Hér má lesa meira um staðalinn.

Svansvottun fyrir mötuneyti

Vottanir 240x240

Matstofa Orkuveitu Reykjavíkur hlaut Svansvottun 2024. Svansvottun fyrir mötuneyti tekur á öllum lífsferli þjónustunnar, með áherslu á þá þætti sem hafa hvað mestu umhverfisáhrifin. Meðal annars skulu innkaup matvæla vera að stórum hluta lífræn og með lægra kolefnisspor. Áhersla er einnig lögð á úrgangsforvarnir, t.d. með aðgerðum gegn matarsóun með skýrum mælingum og miðlun til gesta mötuneytisins. Hér má lesa meira um vottunina.

HACCP/GÁMES - Alþjóðlegt matvælaeftirlitskerfi
Veitur, dótturfélag Orkuveitunnar, er stærsta matvælafyrirtæki landsins, þar sem neysluvatnsframleiðslan þar og hjá Orku náttúrunnar er skilgreind sem matvælaframleiðsla. Kerfin eru viðurkennd af heilbrigðiseftirlitum viðkomandi sveitarfélaga.

Rafmagnsöryggisstjórnunarkerfi
Rafmagnsöryggisstjórnunarkerfi eru lögbundin öryggiskerfi sem allar rafveitur verða að hafa til að mega starfa. Sitt hvort kerfið er fyrir Veitur og Orku náttúrunnar. Kerfin eru vottuð af Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og er virkni þeirra staðfest árlega af faggiltri skoðunarstofu.

Innra eftirlitskerfi sölumæla
Stjórnunarkerfið er lögbundið stjórnunarkerfi til umsýslu með löggildingu sölumæla og er vottað af Neytendastofu. Kerfið tryggir að sölumælar uppfylli þær kröfur og sæti því mælifræðilega eftirliti sem kveðið er á um í lögum, reglugerðum og þeim reglum sem þær vísa til. Virkni kerfisins er staðfest árlega af faggiltri skoðunarstofu.